14 apr. 2008Snæfell komst í kvöld í lokaúrslit í úrslitakeppni í Iceland Express deild karla eftir sigur á Grindavík í mögnuðum körfuboltaleik [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yJm9fbGVhZz0yJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTYw[v-]116:114[slod-] Þetta var fjórði leikur liðanna og hafði Snæfell 2-1 forystu fyrir leikinn. Eftir gríðarlega spennu og dramatík á lokasekúndum leiksins var ljóst að venjulegur leiktími dugði ekki og því þurfti að framlengja. Heimamenn höfðu betur í framlengingunni og tryggðu sér þar með farseðilinn í lokaúrslitin þar sem þeir mæta annað hvort Keflavík eða ÍR en þau mætast í oddaleik á miðvikudagskvöld klukkan 19:15 í Keflavík.