14 apr. 2008Í janúar sl. birtist frétt á síðunni um dagsetningu á lokahófi KKÍ í ár. Lokahófið verður laugardaginn 10. maí. Síðasta lokahóf heppnaðist gríðarlega vel og var uppselt viku fyrir hófið. Lokahófið verður á Broadway. Fljótlega kynnum við til leiks hljómsveitina og annað er tengist hófinu. Því er lofað að skemmtunin verður engu minni í ár. Viljum við hvetja öll félög til að taka þennan dag frá og fjölmenna.