14 apr. 2008Haukar urðu um helgina Íslandsmeistarar í minnibolta 11 ára drengja. Úrslitamótið var haldið í DHL-Höllinni og var æsispennandi enda eru liðin í riðlinum öll frekar sterk. Haukar og ÍBV enduðu jöfn að stigum með 3 sigra og eitt tap en Haukar unnu ÍBV í innbyrðis viðureign liðanna og eru því Íslandsmeistarar. Á karfan.is. má finna [v+]http://www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id=6218&Itemid=1[v-]ítarlega umfjöllun um mótið[slod-].