14 apr. 2008Í kvöld verður fjórði leikur Snæfells og Grindavíkur í Fjárhúsinu í Stykkishólmi. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Snæfell vann fyrstu tvo leikina í einvíginu en Grindvíkngar sigruðu í síðasta leik og náðu að minnka muninn í 2-1. Takist Snæfelli að sigra í kvöld, tryggja þeir sér sæti í úrslitunum. Ef Grindavík sigrar mun 5 leikurinn verða í Röstinni á miðvikudag. Leikir liðanna hafa einkennst af mikilli baráttu og það má búast við að hart verði barist í Hólminum í kvöld. Grindvíkingar bjóða uppá rútuferðir til Stykkishólms. Auk þess hafa fregnir borist af fyrirhugðum ferðum á einkabílum og einkaflugvélum. Gert er ráð fyrir að allir heimamenn sem vettlingi geta valdið mæti á leikinn svo að það má búast við troðfullu húsi og brjálaðri stemmningu í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.