12 apr. 2008Leikurinn í dag er ekki í beinni á Stöð 2 Sport ef einhverjir voru að velta því fyrir sér. Það er því um að gera að fylla Röstina. Á Heimasíðu Snæfells kemur það skýrt fram að leikurinn sé ekki í beinni og Hólmarar hvattir til að fylgja sínu liði. Það sama á við um heimamenn. Í sjónvarpsdagskrá hjá einhverjum af fjölmiðlunum má lesa það út að það sé leikur í beinni í dag en svo er ekki. Næsti leikur sem verður í beinni er leikur ÍR og Keflavíkur sem fram fer á morgun í Seljaskóla klukkan 17:00. Útsendingarteymi karfan.is, með Eggert Balvinsson í fararbroddi mun þó reyna að sýna frá leiknum beint á ská. Það er að segja leikurinn mun verða sendur út ca. 20 mínútum eftir að hann byrjar. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni [v+]http://asp.internet.is/blikar/endursyning.html[v-]hér[slod-].