12 apr. 2008Það verða beinar útsendingar frá öllum leikjum frá og með morgundeginum á Stöð 2 Sport. Á morgun leika ÍR og Keflavík fjórða leikinn í sínu einvígi og mun Stöð 2 Sport sýna leikinn beint. Leikurinn hefst klukkan 17:00. Á mánudag munu Snæfell og Grindavík mætast fjórða sinni og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Ef þarf oddaleiki þá verða þeir báðir á dagskrá miðvikudaginn 16. apríl og verður Stöð 2 Sport með vélar á báðum leikjum og sýna frá þeim báðum. Annar leikurinn hefst klukkan 19:15 og möguleiki er á því að hinn leikur hefjist aðeins seinna svo hægt sé að sjá meira af báðum leikjum. Við munum auglýsa það vel á síðunni strax eftir helgina.