10 apr. 2008Tennessee sigraði í gær lið Stanford í úrslitaleik kvenna í NCAA. Lokatölur voru [v+]http://scores.espn.go.com/ncw/boxscore?gameId=284000063[v-]64-48[slod-]. Tennessee varði þar með titil sinn sem þær unnu í fyrra og eru fyrsta liðið til að gera það síðan Connecticut vann þrisvar í röð frá 2002-2004. Candace Parker var valin leikmaður 4-liða úrslitanna en þetta er annað árið í röð sem hún fær þá viðurkenningu. Parker skoraði 17 stig í leiknum en hún fékk einnig góða hjálp frá liðsfélögum sínum.