10 apr. 2008Það verður stórleikur í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfell og Grindavík mætast. Þetta verður annar leikur liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Fyrsti leikurinn í viðureigninni fór fram í Grindavík og var stórskemmtilegur. Snæfell náði að vinna upp forystu sem Grindavík var með í fjórða leikhluta og sigraði [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002900_4_2[v-]94-97[slod-]. Það lið sem fyrr vinnur 3 leiki í einvíginu kemst í úrslit Iceland Express deildarinnar. Þessi leikur er því mjög mikilvægur fyrir bæði lið. Grindvíkingar bjóða uppá ókeypis rútu í Hólminn og væntanlega munu margir einnig fylgja á einkabílum. Það má því búast við góðri mætingu á leikinn því stuðningsmenn Snæfells hafa ávallt verið duglegir að mæta á völlinn. Mæting á leiki í úrslitakeppninni hefur verið frábær og það má búast við að fólk haldi áfram að fjölmenna á leikina enda frábær skemmtun í boði. Leikurinn hefst klukkan 19:15