10 apr. 2008Leik Snæfells og Grindavíkur er nú lokið. Snæfell sigraði Grindavík í annað sinn og leiðir einvígið 2-0. Grindavík byrjaði leikinn betur og leiddi 14-25 eftir fyrsta leikhluta. Snæfell hafði þó undirtökin í öðrum og þriðja leikhluta og náði að komast yfir. Þeir lönduðu svo mikilvægum sigri [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yJm9fbGVhZz0yJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTUz[v-]79-71[slod-] og eiga því möguleika á því að klára einvígið í næsta leik. Hlynur Bæringsson átti stórleik fyrir heimamenn en hann skoraði 20 stig, tók 21 frákast og varði 7 skot í leiknum. Snæfell náði að halda Jamaal Williams í 10 stigum í leiknum eftir að hafa átt í vandræðum með hann í fyrsta leiknum.