9 apr. 2008Í kvöld verður leikur 2 í einvígi ÍR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. Leikurinn verður í Seljaskóla og hefst klukkan 19:15. ÍR vann fyrsta leik liðanna [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002900_4_1[v-]87-92[slod-] eftir framlengingu. Toyota-Höllin var fyllt í Keflavík og áhorfendur fengu að sjá frábæran leik svo að það má búast við að Seljaskóli verði fylltur í kvöld og að fjörið verði mikið. Þeir sem ekki komast í Seljaskólann í kvöld geta fylgst með beinni útsendingu á [v+]http://asp.internet.is/blikar/[v-]karfan.is[slod-] en Eggert Baldvinsson hefur í hyggju að vera með netútsendingu frá leiknum.