8 apr. 2008Kansas vann Memphis sl. nótt í úrslitaleiknum um meistaratitilinn í háskólaboltanum. Kansas hafði síðast unnið 1988. Í lokin virtist Memphis ætla að hafa þetta en leikmenn þess voru óöruggir á vítalínunni í lokin og svo fór að Mario Chalmers náði að jafna með 3 stiga körfu nánast á lokasekúndu leiksins og tryggja framlengingu. Kansas náði fljótlega undirtökunum í framlengingunni og hafði svo sigur á endanum [v+]http://sports.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000063[v-]75:68[slod-] Þetta var fyrsti titill Kansas síðan 1988 en þá lék með liðinu Danny Manning sem lék lengi með Los Angeles Clippers í NBA deildinni og þjálfari liðsins var Larry Brown sem gerði Detroit Pistons að meisturum 2005. Danny Manning er einn af aðstoðarþjálfurum Kansas í dag. Umfjöllun um leikinn er að finna [v+]http://sports-ak.espn.go.com/ncb/index[v-]hér[slod-]