7 apr. 2008Memphis og Kansas leika til úrslita klukkan 01:20 í nótt um meistaratitilinn í háskólakörfuboltanum. Eins og alltaf hefur keppnin verið frábær skemmtun og til úrslita leika tvö stórskemmtileg lið og má búast við miklum tilþrifum. Kansas vann North Carolina í undanúrslitum og Memphis skellti UCLA. Umræðuþáttur um liðin og keppnina verður á sjónvarpsstöðinni [v+]http://www.nasneurope.com[v-]NASN[slod-] og hefst þátturinn klukkan 23:30. Einnig er hægt að horfa á leikinn beint [v+]http://www.ncaasports.com/mmod/player/1607970[v-]hér[slod-]