7 apr. 2008Öldungamót körfuknattleiksdeildar Þórs verður haldið daganna 10. og 11. maí næstkomandi. Körfuknattleiksdeild Þórs hefur ákveðið að halda mikið og veglegt öldungamót í körfubolta sem fram mun fara daganna 10. og 11. maí. Stefnt er að því að mótið verði sérlega glæsilegt og mikið verði um dýrðir. Búist er við því að mótið verði alþjóðlegt þar sem miklar líkur eru taldar á því að dönsk lið verði með á mótinu og standa yfir viðræður þar að lútandi um þessar mundir. Aldursskipting +30 ára, +40 ára og e.t.v. +50 ára. Að loknu móti verður haldið veglegt lokahóf sem hæfir körfuboltahetjunum með tilheyrandi lúðrablæstri. Ef að líkum lætur má gera ráð fyrir því að rifjaðar verði upp og rykið dustað af gömlum hetjudáðum sem staðist hafa tímans tönn, nema hvað?