7 apr. 2008Undanúrslit í Iceland Express deild karla halda áfram í kvöld þegar Grindavík og Snæfell hefja sína baráttu. Leikurinn fer fram í Röstinni í Grindavík og hefst klukkan 20:00 en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Borgar-Skotið verður til Stokkhólms í kvöld. " Express Hringlið " verður öðru sinni í úrslitakeppninni í kvöld en það er þegar einn áhorfandi sem dreginn er út fær möguleika á því að snúa sér í 10 hringi og skora körfu á 24 sekúndum. Í verðlaun er ferð fyrir einn til Evrópu með [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-]. Á heimasíðum liðanna er umfjöllun um leikina enda er spennan að magnast. [v+]http://www.umfg.is/[v-]Heimasíða Grindavíkur[slod-] [v+]http://www.snaefell.is/[v-]Heimasíða Snæfells[slod-]