7 apr. 2008Grindavík vann um helgina Íslandsmeistaratitilinn í minnibolta 10 ára drengja. Lið Grindavíkur var í A-riðli í allan vetur en hafði ekki náð að sigra fjölliðamót fyrr en um helgina. Það má því segja að strákarnir hafi toppað á réttum tíma en þeir unnu úrslitamótið í DHL-höllinni um helgina. Við óskum Grindavík til hamingju með titilinn.