6 apr. 2008Í kvöld hefjast undanúrslit um Íslandsmeistaratitil í Iceland Express deild karla. Keflavík og ÍR mætast í Toyotahöllinni í Keflavík og hefst leikurinn klukkan 19:15 Borgar-Skotið verður á sínum stað en í kvöld verður skotið upp á ferð til Berlínar. Á morgun hefja Grindavík og Snæfell leik en fyrsti leikurinn í þeirri seríu verður í Grindavík klukkan 20:00