
4 apr. 2008Keflavík varð í kvöld Íslandsmeistari þegar liðið sigraði KR í þriðja leik liðanna í Iceland Express deild kvenna. Keflavík vann því einvígið 3-0 og er tryggði sér þar með 13 Íslandsmeistartitilinn sinn frá upphafi í efstu deild kvenna. Leikurinn var hnífjafn og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Lokatölur voru [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0xJm9fbGVhZz0xJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTQz[v-]91-90[slod-] en KR klikkaði á þriggja stiga skoti á lokasekúndunni. TaKesha Watson lék frábærlega fyrir Keflavík og var valin maður leiksins en hún skoraði 36 stig, tók 5 fráköst og sendi 4 stoðsendingar í leiknum. Hún var einnig valin leikmaður úrslitanna en hún lék frábærlega í þremur leikjum gegn KR. Hjá KR var Candance Futrell með 38 stig og 14 fráköst. Keflavík er vel komið að þessum titli en liðið varð deildarmeistari í vor og vann Powerade bikarkeppnina síðasta haust. Þetta var því frábært tímabil hjá Keflavíkurliðinu og óskum við þeim til hamingju með þennan frábæra árangur.


