3 apr. 2008Í kvöld kemur í ljós hvaða lið fara í undanúrslit Iceland Express deildar karla. Í DHL höllinni mætast KR og ÍR og hefst leikurinn klukkan 19:15. Leikir þessara liða hafa verið frábærir og má búast við svakalegum leik í kvöld. Borgar-Skot kvöldsins er til Billund Í Röstinni mætast Grindavík og Skallagrímur og hefst leikurinn klukkan 19:25. Þetta er þriðja árið í röð þar sem þessi lið mætast í 8-liða úrslitum og hefur ætíð verið mikil spenna í leikjum þessara liða. Í kvöld er allt undir og spennan því mikil. Borgar-Skot kvöldsins er til Friedrichshafen Báðir leikir verða sýndir á Stöð 2 Sport en aðalleikurinn verður KR - ÍR. Leikur Grindavíkur og Skallagríms hefst aðeins seinna en hinn leikurinn en hugmyndin er að skipta alveg yfir til Grindavíkur strax að loknum leik í DHL höllinni.