3 apr. 2008Körfuboltaskóli Þórs verður haldinn helgina 5.-6. apríl í Síðuskóla. Skólinn er ætlaður öllum krökkum á aldrinum 9 til 15 ára (4.-10. bekk), sem hafa áhuga á að prófa skemmtilega íþrótt. Farið verður í fjölbreytilega leiki, skotkeppnir og ýmsar grunnæfingar, auk þess sem skipt verður í lið og spilað. Allir þátttakendur fá minningargrip að skólanum loknum. Verðlaun verða veitt þeim sem sigra skotkeppnirnar sem m.a. felast í því að hitta af löngu færi, en einnig verður keppt í Stinger, Hot-shot og vítaskotum. Skólinn fer fram á eftirfarandi tímum: Laugardagur 5. apríl Kl. 11.00 – 15.00 Sunnudagur 6. apríl Kl. 12.30 – 17.00 Mjög mikilvægt er að allir komi með nesti með sér báða dagana, s.s. ávexti, smurt brauð og ávaxtasafa. Að skólanum loknum er öllum frjálst að mæta á æfingar til prufu ókeypis í eina viku ef vilji er fyrir hendi og hvetjum við alla til þess. Tekið skal fram að það er ekki skilyrði að hafa mætt í skólann til þess að fá að prófa. Æfingatöfluna má nálgast á heimasíðu Þórs á Akureyri (www.thorsport.is). Aðgangur að skólanum er ókeypis. Nánari upplýsingar veitir Baldur I. Jónasson, s. 895-7160 eða [p+]baldur@snerpa.is[p-]baldur@snerpa.is[slod-]. Nánar á [v+]http://www.thorsport.is/thorsport/?D10cID=ReadNews&ID=2972[v-]heimasíðu Þórs[slod-].