1 apr. 2008Í gær fór fram leikur Laugdæla og ÍA í undanúrslitum 2. deildar karla. Laugdælir fóru með sigur af hólmi og hafa þar með tryggt sér sæti í 1. deild karla á næsta tímabili. Laugdælir munu fylgja Hrunamönnum upp í 1. deildina en þessi lið munu leika um Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild karla á Selfossi næsta sunnudag klukka 16:00. Það verður væntanlega mikið um dýrðir á leiknum á sunnudag en leikir liðanna í undanúrslitunum voru vel sóttir af stuðningsmönnum liðanna. Bæði félög halda upp á 100 ára afmæli sitt í ár og stefna þau að því að hafa toppumgjörð á úrslitaleiknum.