1 apr. 2008Körfuboltaveislan heldur áfram í kvöld þegar KR og Keflavík mætast í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna. Keflavík vann fyrsta leik liðanna naumlega [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002901_6_1[v-]82-81[slod-] á sunnudaginn og hefur því 1-0 forystu í einvíginu. Í kvöld verður leikið á heimavelli KR-inga, DHL-Höllinni og hefst leikurinn klukkan 19:15. Það má búast við skemmtilegum leik í kvöld enda tvö góð lið sem mætast þarna. Eggert Baldvinsson hefur gefið út nýjan þátt af 3 núll 5 fyrir. Í þættinum fylgist hann með Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur, leikmanni Keflavíkur í leiknum síðasta sunnudag. Hægt er að sjá 3 núll 5 þættina [v+]http://asp.internet.is/blikar/3null5.html[v-]hér[slod-].