31 mar. 2008Í kvöld fóru fram tveir leikir í 8-liða úrslitum í Iceland Express deild karla. Fyrri leikur kvöldsins var viðureign Snæfells og Njarðvíkur sem fram fór í Stykkishólmi. Heimamenn sigruðu [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002900_2_4[v-]80:66[slod-] Í seinni leik kvöldsins áttust við Reykjavíkurliðin ÍR og KR í Seljaskóla. ÍR vann fyrsta leikinn í DHL höllinni og gátu með sigri klárað einvígið. Eftir mikinn barning og mikla spennu þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni höfðu gestirnir betur og knúðu þar með fram oddaleik sem fer fram á fimmtudaginn. Lokatölur 80:86 Það verða því tveir oddaleikir á fimmtudaginn. Grindavík tekur á móti Skallagrím og KR tekur á móti ÍR.