31 mar. 2008Úrslitakeppni í 2.deild karla hófst í gær þegar Hrunamenn tóku á móti ÍBV á Flúðum. Hrunamenn sigruðu 79:74 og tryggðu sér þar með sæti í 1.deild á næstu leiktíð. Í kvöld kemur svo í ljós hvaða lið fylgir Hrunamönnum þegar Laugdælir taka á móti ÍA á Laugarvatni en leikurinn hefst klukkan 20:00