31 mar. 2008Úrslitakeppnir halda áfram í kvöld en tveir leikir eru á dagskrá í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla og svo er einnig leikið í úrslitakeppni 2.deildar karla. Snæfell og Njarðvík mætast í annað sinn í Stykkishólmi og hefst leikurinn klukkan 19:15. Snæfell leiðir í einvíginu eftir sigur í Njarðvík sl. laugardag. Með sigri getur Snæfell tryggt sér sæti í undanúrslitum. ÍR og KR mætast í Seljaskóla en ÍR leiðir einvígið eftir sigur í DHL höllinni í fyrsta leik. Með sigri kemst ÍR áfram í undanúrslit. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 20:00 Í úrslitakeppni 2.deildar karla mætast Laugdælir og ÍA á Laugarvatni og hefst leikurinn klukkan 20:00