30 mar. 2008Úrslitakeppnir í Iceland Express deildum karla og kvenna, 1.deild karla og 2. deild karla halda áfram í dag og kvöld. Í Borgarnesi er komið að leik númer tvö í viðureign Grindavíkur og Skallagríms. Grindavík vann fyrsta leikinn [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002900_1_2[v-]106:95[slod-]. Leikurinn í Borgarnesi hefst klukkan 19:15. Borgar-Skotið verður á sínum stað og verður skotið upp á ferð til Basel. Á Akureyri eigast Þórsarar og Keflavík við og hefst leikurinn klukkan 19:15. Keflavík vann fyrsta leikinn [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0yJm9fbGVhZz0yJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTI2[v-]105:79[slod-]. Skotið verður upp á ferð til Frankfurt Hahn. Keflavík og KR hefja baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna í Keflavík í dag og hefst leikurinn klukkan 16:00. Skotið verður upp á ferð til Parísar. Í 1.deild karla tekur Valur á móti FSu í lokaúrslitum um lausa sætið í Iceland Express deildinni á næsta tímabili. Valur vann í fyrsta leik á Selfossi [v+]http://server4.mbt.lt/prod/kki/index.php/b19sYW5nPWhlJm9fc2Vhcz0zJm9fbGVhZz0zJmZ1c2VhY3Rpb249Z2FtZXMubWFpbiZnX2lkPTM4[v-]83:89[slod-] og geta með sigri í kvöld tryggt sér sæti í efstu deild. Leikurinn fer fram í Vodafonehöll þeirra Valsmanna og hefst klukkan 19:15 Úrslitakeppnin í 2.deild karla hefst í dag með leik Hrunamanna og ÍBV en leikurinn fer fram á Flúðum og hefst klukkan 15:00. Sigurvegarinn kemst áfram og spilar til úrslita við annað hvort Laugdæli eða ÍA. Hinn undanúrslitaleikurinn fer fram á morgun mánudag þegar Laugdælir taka á móti Skagamönnum á Laugarvatni og hefst leikurinn klukkan 20:00