30 mar. 2008Í gær tryggðu UCLA og North Carolina sér farseðilinn í Final Four og í kvöld kemur í ljós hvaða tveir aðrir skólar bætast í hópinn. Fyrri leikur dagsins er viðureign Memphis(1) og Texas(2) og hófst leikurinn klukkan 18:20. Seinni leikurinn er svo viðureign Kansas(1) og Davidson(10) en hann hefst klukkan 20:05 UCLA mun mæta sigurvegara úr leik Memphis og Texas og North Carolina mætir sigurvegara úr leik Kansas og Davidson. Undanúrslitaleikirnir fara fram næsta laugardag og sjálfur úrslitaleikurinn n.k mánudagskvöld.