30 mar. 2008Iceland Express mun í samvinnu við KKÍ standa fyrir vali á manni leiksins þegar komið er í lokaúrslit um Íslandsmeistaratitil karla og kvenna. Eftir hvern leik í lokaúrslitum verður " Maður leiksins " valinn og fær að launum ferð til Evrópu með [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-]. Í dag hefjast lokaúrslit hjá konunum þegar Keflavík tekur á móti KR í Toyotahöllinni í Keflavík klukkan 16:00. Eftir leik verður tilkynnt hvaða leikmaður verður valinn " Maður leiksins " Óhætt er að mæla því að fólk skelli sér á þennan leik þar sem leikir þessara liða hafa verið mikil skemmtun í vetur. Á leiknum verður skotið upp á ferð til Parísar