30 mar. 20088-liða úrslitum í háskólaboltanum lauk í kvöld og er orðið ljóst hvaða lið komust í Final Four. Memphis rúlluðu yfir Texas fyrr í kvöld [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000030[v-]85:67[slod-] Kansas lauk öskubuskuævintýri Davdison með því að vinna í frábærum leik [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000015[v-]59:57[slod-] þar sem Jason Richards leikmaður Davidson átti nokkuð gott þriggja stiga skot á lokasekúndum sem geigaði. Bill Self þjálfari Kansas komst loksins í Final Four og má segja að Górilluapinn sé dottinn af öxlinni á honum. Honum hefur nokkrum sinnum mistekist að koma skólunum sínum í Final Four og var gríðarleg pressa á honum fyrir þennan leik þar sem Kansas er talið með eitt af allra sterkustu skólum landsins. Það verða því Kansas og North Carolina sem mætast annars vegar og Memphis og UCLA hins vegar næsta laugardag.