30 mar. 2008Fyrsti leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna fór fram í dag í Keflavík. Leikurinn var frábær skemmtun og mikil spenna undir lokin en heimakonur náðu að vinna eins stig sigur í lokin [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002901_6_1[v-]82:81[slod-]. Næsti leikur er í DHL höllinni á þriðjudagskvöld klukkan 19:15 Í leikslok var svo " Manni leiksins " afhent gjafabréf frá Iceland Express sem er ferð til einhvers af áfangastöðum þeirra í Evrópu. Maður leiksins í dag var TaKesha Watson leikmaður Keflavíkur. Hún fær þarna gott tækifæri á því að skoða hvað Evrópa hefur upp á að bjóða.