29 mar. 2008Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hófst í gær með tveimur leikjum og í dag verða tveir leikir. Reykjavíkurfélögin KR(2) og ÍR(7) mætast í DHL höllinni og hefst leikurinn klukkan 16:00. Þessi lið mættust einnig í 8-liða úrslitum á síðustu leiktíð. ÍR byrjaði á því að vinna í DHL höllinni í fyrsta leik [v+]http://www.kki.is/mot/1500002639_00010002.htm[v-]65:75[slod-] KR snéri við blaðinu og náðu að vinna tvo næstu og þar með slá ÍR út. Leikur númer 2 í Seljaskóla endaði með [v+]http://www.kki.is/mot/1500002639_00020002.htm[v-]78:87[slod-] sigri KR og svo náðu KRingar að klára seríuna með því að vinna leik númer 3 [v+]http://www.kki.is/mot/1500002639_00030001.htm[v-]91:78[slod-] Á leik KR og ÍR gefst áhorfendum kostur á að skjóta upp á ferð til London. Í Njarðvík er sjónvarpsleikur fyrstu umferðar en leikur Njarðvíkur og Snæfells verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst leikurinn klukkan 16:00 Leikir þessara liða hafa verið frábær skemmtun í gegnum tíðina og fyrr í vetur lentu þau saman í 4-liða úrslitum Lýsingarbikarsins sem endaði með sigri Snæfells [v+]http://www.kki.is/mot/1500002815_00040001.htm[v-]77:94[slod-] en leikið var í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Á leik Njarðvikur og Snæfells verður skotið upp á ferð til Eindhoven.