28 mar. 2008Í fyrra var ákveðið að afhenda tölfræðiverðlaun vetrarins á leikjum í úrslitakeppninni. Það mæltist vel fyrir og verður einnig sá háttur hafður á í ár. Á leik Keflavíkur og Þórs fá tveir leikmenn úr Iceland Express deild kvenna sín verðlaun afhent. Birna Valgarðsdóttir leikmaður Keflavíkur fær verðlaun fyrir bestu 3 stiga nýtingu en hún var með 44% skotnýtingu.
Besta 3ja stiga skotnýting í Iceland Express deild kvenna 2007-08: 1. Birna I Valgarðsdóttir, Keflavík 44,0% (22/50) 2. Kiera Hardy, Haukar 39,0% (110/282) 3. Petrúnella Skúladóttir, Grindavík 38,5% (30/78) 4. TaKesha Watson, Keflavík 37,9% (58/153) 5. Íris Sverrisdóttir, Grindavík 36,8% (14/38) 6. Joanna Skiba, Grindavík 36,0% (67/186) 7. Candace Futrell, KR 35,7% (15/42) 8. Slavica Dimovska, Fjölnir 34,4% (93/270) 9. Marín R Karlsdóttir, Keflavík 34,0% (18/53) 10. Jovana L Stefánsdóttir, Grindavík 33,3% (20/60) TaKesha Watson leikmaður Keflavíkur fær verðlaun fyrir bestu vítanýtingu en hún hitti úr 84% vítaskota sinna. Besta vítanýting í Iceland Express deild kvenna 2007-08: 1. TaKesha Watson, Keflavík 84,4% (130/154) 2. Slavica Dimovska, Fjölnir 81,5% (106/130) 3. Joanna Skiba, Grindavík 80,2% (77/96) 4. Tiffany Roberson, Grindavík 80,1% (129/161) 5. La K Barkus, Hamar 79,8% (142/178) 6. Kiera Hardy, Haukar 78,8% (78/99) 7. Molly Peterman, Valur 75,0% (117/156) 8. Monique Martin, KR 74,9% (158/211) 9. Candace Futrell, KR 74,4% (32/43) 10. Unnur T Jónsdóttir, Haukar 71,0% (66/93)