28 mar. 2008Háskólaboltinn er á fullu og í kvöld eru seinni fjórir leikirnir í 16-liða úrslitunum. [v+]http://www.nasneurope.com/content/nasn/portal.nsf/systemcontent/tvschedule?open&dateadjust=0&[v-]NASN[slod-] verður með beinar útsendingar frá leikjunum í kvöld og verður fyrri aðalleikurinn viðureign Davidson(10) og Wisconsin(3) og hefst leikurinn klukkan 23:10. Hliðarleikur verður viðureign Stanford(3) og Texas(2) en sá leikur hefst klukkan 23:27 Seinni aðalleikur kvöldsins verður viðureign Villanova(12) og Kansas(1) og hefst leikurinn klukkan 01:40 eftir miðnætti. Hliðarleikur er viðureign Michigan State(5) og Memphis(1) og hefst leikurinn klukkan 01:57 eftir miðnætti. Hægt er að velja og sjá alla leiki frítt á netinu [v+]http://www.ncaasports.com/mmod/player/1604103[v-]hér[slod-]