27 mar. 2008Það má með sanni segja að Borgar-Skotið hafi hitt í mark í úrslitakeppnum Iceland Express deilda karla og kvenna í fyrra. [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-] flýgur til margra spennandi borga og því þótti það sniðugt að setja á laggirnar skotleik þar sem áhorfendum á leikjum í úrslitakeppnunum gefst kostur á því að skjóta ýmist frá þriggja stiga línunni eða frá miðju upp á ferð fyrir tvo til einhverra af þessum fjölmörgu borgum sem Iceland Express býður upp á. Það fá fjórir áhorfendur að spreyta sig í hverjum leik og það eru jafnt stuðningsmenn heimaliðsins sem og aðkomuliðs. Það hefur skapast mikil stemning í kringum þessi skot og aðrir áhorfendur láta vel í sér heyra og hvetja viðkomandi á meðan á þessu stendur. Fylgist með á heimasíðum liðanna og [v+]http://www.kki.is/[v-]kki.is[slod-] þar sem fram kemur til hvaða borgar er skotið hverju sinni. [v+]http://www.icelandexpress.is/[v-]Iceland Express[slod-] og [v+]http://www.kki.is/[v-]KKÍ[slod-] eru sannarlega á flugi saman og gera það með ánægju.