25 mar. 2008KR komst í kvöld í úrslit Iceland Express deildar kvenna þegar liðið sigraði Grindavík í fimmta leik liðanna. Þær munu því mæta Keflavík í úrslitunum. Leikurinn var jafn og spennandi en KR náði að knýja fram sigur fyrir káta stuðningsmenn sína en vel var mætt í DHL-Höllina í kvöld. Lokatölur urðu [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002901_5_1[v-]83-69[slod-]. Candance Futrell var stigahæst KR-inga með 26 stig og Sigrún Ámundadóttir skoraði 23 stig og tók 14 fráköst.