22 mar. 200864 liða úrslitin í háskólakörfuboltanum héldu áfram í gær og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Í leikjum gærdagsins enduðu tveir í framlengingu og tveir unnust á skoti á síðustu sekúndu. Fyrsta daginn unnust nánast allir leikir eftir bókinni en svo var ekki í gær. Hér að neðan eru úrslit úr nokkrum leikjum. (13) Siena sigraði Vanderbilt (4) [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000005[v-]83:62[slod-] (13) San Diego sigraði Connecticut (4) [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000036[v-]70:69[slod-] í framlengingu. (12) Western Kentucky sigraði Drake (5) [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000035[v-]101:99[slod-] með þriggja stiga körfu á lokasekúndu framlengingar. (12) Villanova sigraði Clemson (5) [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000004[v-]75:69[slod-] (7) Davidson sigraði Gonzaga (10) [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000011[v-]82:76[slod-] þar sem [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/player/profile?playerId=32284[v-]Stephen Curry[slod-] skoraði 40 stig. Stephen er sonur Del Curry sem lék 16 tímabil í NBA og var þekktur sem ein mesta þriggja stiga skytta deildarinnar. Sonurinn er ekki ósvipaður. Á [v+]http://sports-ak.espn.go.com/ncb/tournament[v-]ESPN[slod-] er hægt að finna frábæra umfjöllun um alla leikina sem og viðtöl við leikmenn og þjálfara. 32-liða úrslit hefjast í dag með eftirtöldum leikjum: (7) West Virgiana - Duke (2) (11) Kansas State - Wisconsin (3) (6) Purdue - Xavier (3) (5) Notre Dame - Washington State (4) (6) Marquette - Stanford (3) (8) UNLV - Kansas (1) (5) Michigan State - Pittsburgh (4) (9) Texas A&M - UCLA (1) Nokkrir fróðleiksmolar: Fylgist með [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/player/profile?playerId=36671[v-]Micheal Beasley[slod-] leikmanni Kansas State. Hann er á sínu fyrsta ári en er þegar talinn einn allra besti leikmaður deildarinnar. [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/player/profile?playerId=36059[v-]Kevin Love[slod-] leikmaður UCLA er einnig á sínu fyrsta ári og hefur leikið frábærlega á tímabilinu. Íslenska landsliðið mun leika gegn [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/clubhouse?teamId=87[v-]Notre Dame[slod-] háskólanum á æfingamóti á Írlandi í ágúst nk. Það er hægt að horfa á alla leiki frítt [v+]http://ncaasports.com/mmod?source=mktg_mmod08_vip1_n-hpps&refcode=mmod08_vip1_n-hpps[v-]hér[slod-]