22 mar. 2008Fyrsti leikur í 32-liða úrslitum í háskólaboltanum fór fram fyrr í kvöld og var það leikur Duke og West Virginia. Fyrirfram var Duke talið sigurstranglegra enda alltaf á meðal bestu skóla í landinu. West Virginia hafa hins vegar á að skipa ágætis liði og eru með Bob Huggins margreyndan þjálfara við stjórnvölinn en Bob þjálfaði lið Cincinatti í mörg ár. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem Duke hafði frekar yfirhöndina náðu leikmenn WV að setja í lás í þeim síðari og uppskáru góðan sigur [v+]http://scores.espn.go.com/ncb/boxscore?gameId=284000044[v-]73:67[slod-] Nú standa yfir tveir leikir og seinna í kvöld lýkur svo fyrra kvöldinu í 32-liða úrslitum.