20 mar. 2008Háskólakörfuboltinn nýtur mikillar vinsældar á Íslandi sem og annars staðar enda ekki annað hægt en að hrífast með þessum hæfileikaríku leikmönnum sem eru að berjast fyrir því að komast að í NBA eða í deildum í Evrópu. Í dag hefjast 64 liða úrslit en keppt er með útsláttarfyrirkomulagi sem gerir spennuna enn meiri. Sjónvarpsstöðin [v+]http://www.nasn.com/[v-]Nasn[slod-] sýnir frá keppninni og eru nokkrir leikir á dag í beinni útsendingu. Hægt er að nálgast áskrift að þessari stöð hjá [v+]http://www.siminn.is/einstaklingar/sjonvarp/[v-]Símanum[slod-] eða [v+]http://www.skjarinn.is/[v-]Skjánum[slod-] [v+]http://www.nasneurope.com/content/nasn/portal.nsf/systemcontent/tvschedule[v-]Hér[slod-] er hægt að sjá hvenær leikir eru sýndir og klukkan hvað. Á [v+]http://sports-ak.espn.go.com/ncb/index[v-]Espn[slod-] er að finna mikla umfjöllun um keppnina þar sem sérfræðingar spá í spilin.