18 mar. 2008U15 drengjalandslið, sem er skipað drengjum fæddum 1993 og síðar mun taka þátt í alþjóðlegu móti rétt fyrir utan Kaupmannahöfn dagana 5. til 9. júní í sumar. 16 leikmenn hafa verið valdir til þess að leika með liðinu en þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson. Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn: Alexander Jarl Þorsteinsson, ÍBV Andri Þór Skúlason, Keflavík Anton Örn Sandholt, Breiðablik Aron Ingi Valtýsson, Keflavík Ágúst Orrason, Breiðablik Emil Karel Einarsson, Þór Þorlákshöfn Ingi Rúnar Kristinsson, Breiðablik Kristófer Ednuson, KR Maciej Stanislav Baginski, Njarðvík Matthías Orri Sigurðarson, KR Oddur Birnir Pétursson, Njarðvík Sigtryggur Arnar Björnsson, Kanada Snorri Hrafnkelsson, Breiðablik Valur Orri Valsson, Skallagrímur Þorsteinn Ragnarsson, Þór Þorlákshöfn Ægir Hreinn Bjarnason, Breiðablik Hópurinn mun æfa stíft í maí og byrjun júní fram að móti.