17 mar. 2008Deildarkeppni 1. deildar karla er lokið og nú er búið að ákveða leiktíma í 1. umferð úrslitakeppninnar. Breiðablik vann deildarmeistaratitilinn og tryggði sér sæti í Iceland Express deildinni á næsta ári en FSu, Valur, Ármann og Haukar munu leika um hitt sætið sem laust er í efstu deild næsta vetur. Leikjaniðurröðun 1. umferðar úrslitakeppninnar: Miðvikudagur 19. mars: FSu - Haukar klukkan 19:15 í Iðu á Selfossi, leikur 1. Valur - Ármann klukkan 20:00 í Vodafonehöllinni, leikur 1. Laugardagur 22. mars: Haukar - FSu klukkan 14:00 að Ásvöllum í Hafnarfirði, leikur 2. Ármann - Valur klukkan 16:00 í Laugardalshöllinni, leikur 2. Þriðjudagur 25. mars: Oddaleikir úr fyrstu umferð.