14 mar. 2008Það verður mikið um að vera í kvöld. Úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hefst, lokaumferð 1. deildar karla fer fram og 2 leikir verða í Iceland Express deild karla. KR tekur á móti Grindavík klukkan 19:15 í DHL-Höllinni í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Það er ljóst að þetta verður hörkuleikur en þessi lið enduðu í 2. og 3. sæti deildarinnar. Liðin mættust 4 sinnum í deildinni í vetur og unnu 2 leiki hvort. Það má því búast við jöfnum og spennandi leik í kvöld. Lokaumferð 1. deildar karla verður í kvöld. Enn er ekki ljóst hvernig lokastaðan í deildinni verður en Ármann og Haukar gætu skipt um stað í töflunni. Í Iceland Express deild karla verða 2 leikir. Hamar og Stjarnan mætast í Hveragerði í leik sem er Iceland Express leikur umferðarinnar. Í Borgarnesi mætast Keflavík og Skallagrímur. Keflavík getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með því að sigra í kvöld.