12 mar. 2008Í dag klukkan 14:00 verður á Grand Hótel blaðamannafundur vegna úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Á fundinn munu mæta fulltrúar frá Keflavík, KR, Grindavík og Haukum en þessi liði munu leika í úrslitakeppninni sem hefst á föstudaginn. Keflavík varð deildarmeistari og mun því mæta Haukum, sem enduðu í fjórða sæti, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þessi lið mættust í úrslitunum í fyrra en þá sigruðu Haukar. Fyrsti leikurinn á milli liðanna verður klukkan 17:00 á laugardaginn í Keflavík. Hin viðureignin mun verða á milli KR og Grindavíkur. KR kom upp úr annarri deildinni í fyrra og hefur náð frábærum árangri í vetur. Liðið endaði í öðru sæti og hefur því heimaleikjarétt í fyrstu umferðinni gegn Grindavík. Grindavík hefur verið með sterkustu liðunum í deildinni síðustu ár og eru núverandi bikarmeistarar. Það er ljóst að mikil spenna verður í kringum þessa viðureign. Fyrsti leikur KR og Grindavíkur verður á föstudag, klukkan 19:15 í DHL-Höllinni. Leikjaplan fyrstu umferðar úrslitakeppninnar: 14.03.2008 KR – Grindavík leikur 1 kl. 19:15 15.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 1 kl. 17:00 16.03.2008 UMFG - KR leikur 2 kl. 19:15 17.03.2008 Haukar - Keflavík leikur 2 kl. 19:15 19.03.2008 KR - Grindavík leikur 3 kl. 19:15 19.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 3 kl. 19:15 22.03.2008 Grindavík - KR leikur 4 kl. 16:00 (ef að með þarf) 22.03.2008 Haukar - Keflavík leikur 4 kl. 16:00 (ef að með þarf) 25.03.2008 KR - Grindavík leikur 5 kl. 19:15 (ef að með þarf) 25.03.2008 Keflavík - Haukar leikur 5 kl. 19:15 (ef að með þarf)