9 mar. 2008Snæfell tryggði sér um helgina deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna. Lið Snæfells lék tvo leiki um helgina en þær sigruðu Skallagrím í gær í Borgarnesi og unnu svo Þór Akureyri í dag í Stykkishólmi [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002700_17_3[v-]84-42[slod-]. Snæfell hefur leikið frábærlega í deildinni í vetur og eru stúlkurnar taplausar eftir veturinn. Þær eiga aðeins einn leik eftir á útivelli gegn Njarðvík en sigrarnir um helgina tryggðu þeim deildarmeistaratitilinn og sæti í Iceland Express deild kvenna á næsta ári. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, afhenti verðlaun eftir leikinn gegn Þór í dag.