5 mar. 2008Í kvöld verða þrír leikir í Iceland Express deild kvenna. Keflavík getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn ef þær sigra KR. Einungis tvær umferðir eru eftir í deildinni og Keflavík er með fjögurra stiga forskot á KR þannig að takist þeim að sigra eru þær búnar að tryggja sér efsta sæti deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í DHL-Höllinni. Annar stórleikur verður í Hafnarfirði þegar Haukar taka á móti Grindavík klukkan 19:15 í kvöld. Grindavík er í 3. sæti deildarinnar með 30 stig en Haukar eru í því fjórða með 26. Í Hveragerði mætast svo Hamar og Valur. Þessi lið eru í 5. og 6. sæti deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19:15.