29 feb. 2008Fresta þurfti leik Hauka og KFÍ sem fara átti fram í kvöld í 1. deild karla. Búið er að aflýsa öllu flugi frá Ísafirði í dag og því komast Ísfirðingar ekki til leiks. Leikurinn mun fara fram sunnudaginn 2. mars klukkan 19:15, að Ásvöllum í Hafnarfirði.