24 feb. 2008Grindavík og Haukar mætast í dag í bikarúrslitaleik Lýsingarbikars kvenna og á meðan að Haukakonur geta unnið bikarinn annað árið í röð og í fimmta sinn frá upphafi þá eru Grindavíkurkonur á eftir sínum fyrsta bikartitli. Úrslitaleikurinn hefst klukkan 14.00 og verður í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Það eru tuttugu ár síðan að nýtt nafn fór á kvennabikarinn en það var þegar Keflavík vann bikarinn 1988. Næst á undan Keflvíkingum til að vinna bikarinn í fyrsta sinn voru Haukakonur sem unnu hann í fyrsta skipti árið 1984. Grindavík getur orðið sjöunda félagið sem eignast bikarmeistara í kvennaflokki. Fyrsti bikarmeistaratitill félaga í kvennaflokki: Þór Akureyri 1975 (vann KR 20-16) KR 1976 (vann ÍR 46-42) ÍS 1978 (vann KR 58-34) ÍR 1979 (vann ÍS 55-45) Haukar 1984 (vann ÍS 69-57) Keflavík 1988 (vann Hauka 76-60) Flestir bikarmeistaratitlar kvenna 1975-2007: 11 Keflavík (1988, 89, 90, 93, 94, 95, 96, 97, 98, 2000, 04) 9 KR (1976, 77, 82, 83, 86, 87, 99, 2001, 02) 7 ÍS (1978, 80, 81, 85, 91, 2003, 06) 4 Haukar (1984, 92, 2005, 07) 1 Þór Akureyri (1975) 1 ÍR (1979)