24 feb. 2008Snæfell tryggði sér bikarmeistaratitilinn í úrslitaleik karla í Lýsingarbikarkeppninni. Lokatölur urðu [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002815_5_1[v-]109-86[slod-]. Snæfell hóf leikinn af krafti og náði ágætu forskoti. Leikmenn Fjölnis gáfust þó ekki upp heldur náðu að koma sér aftur inn í leikinn með góðri syrpu í öðrum leikhluta. Snæfell hafði frumkvæðið í seinni hálfleik og náði þægilegu forskoti í fjórða leikhluta sem dugði þeim til sigurs. Fjölnismenn börðust vel í leiknum en Snæfell lék mjög vel í dag og hittni þeirra var mjög góð utan af velli. Það var augljóst að leikmenn Snæfells ætluðu sér ekki að fara tómhentir heim og unnu þeir verðskuldaðan sigur í dag.