24 feb. 2008Snæfellingurinn Sigurður Þorvaldsson skoraði 30 stig í 109-86 sigri Snæfells á Fjölni í bikarúrslitaleik Lýsingarbikars karla í dag og varð þar með aðeins sjötti Íslendingurinn í 39 ára sögu bikarúrslitaleiksins til þess að brjóta 30 stiga múrinn. Sigurður var ennfremur fyrsti íslenski leikmaðurinn í 14 ár sem nær að skora 30 stig í bikaúrslitaleik en síðastur til þess á undan honum var Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson sem náði því í tapleik árið 1994. Sigurði vantaði hinsvegar enn fimmtán stig upp á að jafna stigamet Vals Ingimundarsonar sem skoraði 45 stig í úrslitaleiknum fyrir tuttugu árum síðan. Flest stig Íslendings í bikarúrslitaleik karla: 45 - Valur Ingimundarson, Njarðvík (gegn KR 1988, sigur) 38 - Teitur Örlygsson, Njarðvík (gegn Keflavík 1994, tap) 37 - Guðni Guðnason, KR (gegn Njarðvík 1988, tap) 31 - Kolbeinn Pálsson, KR (gegn ÍR 1972, sigur) 30 - Jón Sigurðsson, Ármanni (gegn Njarðvík 1976, sigur) 30 - Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli (gegn Fjölni 2008, sigur) Skipting stiga Sigurðar Þorvaldssonar í úrslitaleiknum 2008: Í 1. leikhuta 11 Í 2. leikhuta 3 Í 3. leikhuta 14 Í 4. leikhuta 2 Í fyrri hálfleik 14 Í seinni hálfleik 16 -------------------- Stig úr teig 6 Stig utan teigs 0 Stig úr þriggja stiga skotum 21 Stig af vítalínunni 1 Stig úr hraðaupphlaupum 2