23 feb. 2008Úrslitaleikirnir í Lýsingarbikarnum nálgast hratt en þeir verða leiknir á sunnudag í Laugardalshöllinni. Enn er hægt að kaupa miða í forsölu á [v+]http://midi.is/ithrottir/1/5104[v-]midi.is[slod-]. Það má búast við góðri mætingu á báða leikina en liðin hafa verið dugleg við að kynna leikinn í sínum heimahögum. Sætaferðir verða frá Grindavík og Stykkishólmi og má búast við að stór hluti af íbúum þessarra miklu körfuboltabæja mæti í höllina á morgun. Mikil eftirvænting hefur ríkt í vikunni eftir úrslitaleikjunum og það má lesa nokkur áhugaverð viðtöl á heimasíðu [v+]http://www.lysingarbikarinn.is/[v-]Lýsingarbikarsins[slod-]. Það er fátt skemmtilegra en að horfa á bikarúrslitaleiki í Laugardalshöllinni og hvetjum við alla til að ná sér í miða og mæta í höllina á morgun. Úrslitaleikur kvenna, Grindavík - Haukar, hefst klukkan 14:00. Úrslitaleikur karla, Fjölnir - Snæfell, hefst klukkan 16:00.