22 feb. 2008Nú er þriðju umferð Íslandsmóta yngri flokkanna lokið eða að ljúka og farið að skýrast hvaða lið komast í úrslit í hverjum flokki. Úrslit eru leikin í A-riðlum hvers aldursflokks en liðum sem ekki leika í A-riðli býðst að taka þátt í vormótum. Skráning eru hafin í þau og lýkur henni mánudaginn 25. febrúar næstkomandi. Forsvarsmenn yngri flokka geta fengið skráningarblöð með því að senda póst á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-].