20 feb. 2008Nú er komið á hreint hvaða lið munu mætast í bikarúrslitum yngri flokka kvenna sem fara fram 1.-2. mars í Iðu á Selfossi. Í gær fóru fram tveir síðustu undanúrslitaleikir í bikarkeppnum yngri flokka kvenna og unglingaflokkur KR var síðasta liðið sem tryggði sér sæti í bikarúrslitaleik í ár þegar liðið vann 58-51 sigur á Haukum á Ásvöllum. Þetta var sögulegur sigur því Haukar hafa orðið bikarmeistarar í unglingaflokki kvenna undanfarin fjögur ár og töpuðu síðast bikarleik fyrir Keflavík í úrslitaleiknum á Ásvöllum 8. mars 2003. Sigrún Ámundadóttir í liði KR var með 17 stig og 17 fráköst í leiknum en hún hefur orðið bikarmeistari með Haukum undanfarin þrjú ár og á því möguleika á að vinna bikarinn fjórða árið í röð. Grindavík, Haukar og Keflavík eiga öll tvo fulltrúa í úrslitaleikjum kvenna í ár en KR og Hrunamenn eiga síðan eitt lið hvort félag. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2004 sem fleiri en fjögur félög eiga fulltrúa í bikarúrslitaleikjum yngri flokka kvenna. Bikarúrslitaleikir yngri flokka kvenna 2008: Unglingaflokkur kvenna: KR-Grindavík Stúlknaflokkur: Haukar-Grindavík 10.flokkur kvenna: Keflavík-Haukar 9.flokkur kvenna: UMFH-Keflavík Úrslitaleikirnir fara fram í Iðu á Selfossi helgina 1. til 2. mars næstkomandi. Félög í bikarúrslitaleikjum yngri flokka kvenna frá 2000: 2000 3 félög (Keflavík 2, Grindavík, Kormákur) 2001 5 félög (Keflavík 2, Grindavík, ÍR/Breiðablik, Haukar , UMF Hrunamanna) 2002 4 félög (Haukar 2, Keflavík 2, Njarðvík , Grindavík) 2003 3 félög (Njarðvík 2, Keflavík 2, Haukar 2) 2004 5 félög (Grindavík 2, Keflavík, Kormákur, Njarðvík, Haukar) 2005 3 félög (Haukar 3, Grindavík 2, Keflavík) 2006 4 félög (Grindavík 2, Haukar 2, Njarðvík, UMF Hrunamanna) 2007 4 félög (Haukar 4, Keflavík 2, Hamar/Selfoss, UMF Hrunamanna) 2008 5 félög (Grindavík 2, Haukar 2, Keflavík 2, KR*, UMF Hrunamanna) * Þetta verður fyrsti bikarúrslitaleikur KR í yngri flokkum kvenna frá árinu 1990 þegar stúlknaflokkur félagsins tapaði fyrir Keflavík.